Nokia E60 - Vinnuumhverfi

background image

Vinnuumhverfi

Hafa ber í huga að farið sé að öllum sérstökum reglugerðum sem gilda á hverju svæði og að slökkva alltaf á tækinu þar sem

notkun þess er bönnuð, eða þar sem hún kann að valda truflun eða hættu. Tækið notist aðeins í hefðbundinni stöðu. Þetta tæki

uppfyllir skilyrði um leyfileg mörk útvarpsbylgna (RF) við notkun annaðhvort í hefðbundinni stöðu við eyrað eða þegar það er

haft að minnsta kosti 1,5 sm (5/8 tommur) frá líkamanum. Ef taska, beltisklemma eða hald er notað þegar tækið er borið á

líkamanum við notkun ætti slíkur búnaður ekki að innihalda málm og halda ætti tækinu að minnsta kosti í þeirri fjarlægð frá

líkamanum sem nefnd var hér á undan.
Til að senda gagnaskrár eða boð þarf þetta tæki góða tengingu við símkerfið. Í sumum tilvikum getur sending gagna eða boða

tafist þar til slík tenging er tiltæk. Tryggja skal að ofangreindum fjarlægðarfyrirmælum sé fylgt þar til sendingu er lokið.
Hlutar tækisins eru segulmagnaðir. Málmefni geta dregist að tækinu. Ekki má geyma kreditkort eða aðra segulmagnaða hluti

með geymsluminni nálægt tækinu því upplýsingar sem þar eru geymdar gætu þurrkast út.