Leiðsagnarforrit
Leiðsagnarforritið vísar þér til áfangastaðar. Höfuðáttirnar eru gefnar til kynna með bókstöfum á hringnum. Áttin að
ákvörðunarstað er gefin til kynna með dekkri lit.
Veldu úr eftirfarandi:
Velja ákvörðunarstað
til að velja leiðarmerki eða staðsetningu sem ákvörðunarstað ferðarinnar, eða til að
færa inn lengdar- og breiddargráðu ákvörðunarstaðar.
Hætta leiðsögu
til að eyða ákvörðunarstaðnum sem valinn var fyrir
ferðina.
Vista stöðu
til að vista núverandi staðsetningu sem stað eða leiðarmerki.
Staða gervitungla
til að sjá sendistyrk
gervitunglanna sem sjá leiðsagnarforritinu fyrir nauðsynlegum upplýsingum um staðsetningu.
Vistaðar staðsetn.
til að sjá
staðsetningarnar sem þú hefur vistað tímabundið í tækinu til að aðstoða við leiðsögnina.