Nokia E60 - Aðgangsstaðahópar

background image

Aðgangsstaðahópar

.

Tækið þitt styður samfellt reiki á milli þráðlausrar aðgangstækni, eins og WLAN- og GPRS-tækni, fyrir tölvupóst. Þú getur t.d.

byrjað að vinna í tölvupósti heima hjá þér, og haldið því áfram á leið til vinnu. Þú getur unnið áfram í tölvupóstinum ótruflaður,

og á meðan skiptir tækið þitt úr WLAN-tengingu í GPRS-tengingu og aftur í WLAN-tengingu þegar þú kemur í vinnuna.

Aðgangsstaðahópar

1. Til að búa til nýjan aðgangsstaðahóp skaltu velja

Aðgangsstaðahópar

>

Valkostir

>

Nýr hópur

.

2. Sláðu inn heiti fyrir hópinn í reitinn

Heiti hóps

.

3. Í reitnum

Reiki tenginga

skaltu tilgreina hvort sýna eigi skiptiferli tenginga á skjánum á tækinu þínu.

4. Veldu og breyttu aðgangsstaðnum sem tilheyrir þessum hópi í hlutanum

Aðgangsstaðir

.

Til að bæta aðgangsstað í valinn aðgangsstaðahóp skaltu velja

Aðgangsstaðir

>

Valkostir

>

Nýr aðgangsstaður

, og veldu

aðgangsstað sem á að bæta við.
Til að breyta aðgangsstað í aðgangsstaðahópi, skaltu velja aðgangsstaðinn og síðan

Valkostir

>

Breyta

.

Til að fjarlægja aðgangsstað úr aðgangsstaðahópi, skaltu velja aðgangsstaðinn og síðan

Valkostir

>

Fjarlægja

.

Til að stilla röð aðgangsstaðanna í samfelldu tölvupóstreiki, skaltu velja aðgangsstaðahóp og síðan

Breyta

. Flettu að

aðgangsstað og veldu

Valkostir

>

Auka forgang

eða

Minnka forgang

.

Til að breyta SMTP-stillingum aðgangsstaðar, skaltu velja viðeigandi aðgangsstað af lista yfir aðgangsstaðahópa og velja

Valkostir

, og velja síðan úr eftirfarandi:

Hundsa SMTP-miðlara

— Skrifa yfir gildandi SMTP-miðlarastillingar.

SMTP-miðlari

— Breyta heiti eða IP-tölu miðlarans.

Örugg tenging

— Velja hvort nota eigi örugga tengingu.

Nota sannvottun

— Velja hvort nota eigi sannvottun.

Notandanafn

— Breyta notendanafni þínu fyrir SMTP-miðlarann.

Lykilorð

— Færa inn lykilorðið þitt fyrir SMTP-miðlarann.