Uppsetning aðgangsstaðar fyrir þráðlaust staðarnet
1. Veldu
Valmynd
>
Verkfæri
>
Stillingar
>
Samband
>
Aðgangsstaðir
.
2. Veldu
Valkostir
>
Nýr aðgangsstaður
. Til að nota eldri aðgangsstað sem fyrirmynd að nýjum skaltu velja
Nota gildandi
stillingar
. Til að byrja með tóman aðgangsstað velurðu
Nota sjálfv. stillingar
.
3. Færðu inn eftirfarandi stillingar:
•
Nafn tengingar
— Sláðu inn lýsandi heiti fyrir tenginguna.
•
Flutningsmáti
— Veldu
Þráðlaust staðarnet
.
•
Heiti þráðl. staðarnets
— Til að slá inn SSID (service set identifier), það er heitið sem ber kennsl á þráðlausa staðarnetið,
velurðu
Slá inn handvirkt
. Til að velja netið úr þráðlausum staðarnetum í færi velurðu
Leita að staðarnetum
.
•
Staða þráðlausa netsins
— Veldu
Falið
ef kerfið sem þú tengist við er falið og
Sýnilegt
ef það er það ekki.
•
Gerð þráðl. staðarnets
— Ef þú velur
Grunnnet
geta tæki haft samskipti við hvert annað og við fasttengd LAN-tæki gegnum
aðgangsstað þráðlauss staðarnets. Með
Sértækt
senda og móttaka tæki gögn beint frá hvort öðru og ekki er þörf á LAN-
aðgangsstað.
•
Öryggi þráðl. staðarnets
— Velja verður sömu öryggisstillingu og notuð er fyrir aðgangsstað þráðlausa staðarnetsins. Ef
þú velur WEP (wired equivalent privacy), 802.1x, eða WPA2 (Wi-Fi protected access) þarftu einnig að gera nauðsynlegar
viðbótarstillingar.
•
Öryggisstillingar
— Breyttu öryggisstillingum fyrir valda
Öryggi þráðl. staðarnets
.
•
Heimasíða
— Sláðu inn vefslóð síðunnar sem þú vilt birta sem heimasíðu þegar þú notar þennan aðgangsstað.
Það getur verið mismunandi hvaða stillingar eru í boði.