Bluetooth
Takmarkanir kunna að vera á notkun Bluetooth-tækni á sumum stöðum. Kanna skal það hjá yfirvöldum á staðnum eða
þjónustuveitunni.
Aðgerðir sem nota Bluetooth-tækni eða leyfa slíkum aðgerðum að keyra í bakgrunni meðan aðrar aðgerðir eru notaðar krefjast
aukinnar rafhlöðuorku og minnka endingu rafhlöðunnar.
Þetta tæki er samhæft við Bluetooth Specification 1.2 sem styður eftirfarandi snið: Generic Access Profile, Serial Port Profile, Dial-
up Networking Profile, Headset Profile, Handsfree Profile, Generic Object Exchange Profile, Object Push Profile, File Transfer
Profile, og Basic Imaging Profile. Til að tryggja samvirkni milli annarra tækja sem styðja Bluetooth-tækni skal nota aukahluti
sem eru viðurkenndir af Nokia fyrir þessa tegund. Leita skal upplýsinga hjá framleiðendum annarra tækja um samhæfi þeirra
við þetta tæki.
Bluetooth-tækni gefur kost á þráðlausri tengingu á milli tveggja rafeindatækja sem eru í innan við 10 metra (33 feta) fjarlægð
frá hvort öðru. Hægt er að nota Bluetooth-tengingu til að senda myndir, hreyfimyndir, nafnspjöld, minnismiða í dagbókum og
til að tengjast við önnur tæki sem nota Bluetooth-tækni, líkt og tölvur.
Þar sem tæki sem nota Bluetooth-tækni hafa samskipti með útvarpsbylgjum þurfa tækið þitt og tækið sem það er tengt við
ekki að vera staðsett beint á móti hvort öðru. Tækin tvö þurfa einungis að vera í innan við 10 metra fjarlægð frá hvort öðru.
Truflanir geta þó orðið á tengingunni vegna veggja eða annarra rafeindatækja.