Nokia E60 - Tengingar

background image

Tengingar

Höfundarréttarvarnir geta komið í veg fyrir að hægt sé að afrita, breyta, flytja eða framsenda sumar myndir, tónlist (þar á meðal

hringitóna) og annað efni.
Tækið býður upp á ýmsa möguleika til þess að tengjast internetinu, innra neti fyrirtækis, öðru tæki eða tölvu. Þráðlausir

möguleikar eru m.a. þráðlaust staðarnet, Bluetooth og innrauðar tengingar. Tækið styður tengingu með USB-kapli fyrir Nokia

PC Suite eða IP passthrough. Í tækinu er einnig netsími (VoIP), kallkerfi, spjallforrit og mótaldstengingar.