SIM-korti og rafhlöðu komið fyrir
Öll SIM-kort skal geyma þar sem lítil börn ná ekki til. Upplýsingar um framboð og notkun SIM-korta má fá hjá seljanda SIM-
kortsins. Þetta getur verið þjónustuveitan, símafyrirtækið eða annar söluaðili.
1. Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður en rafhlaðan er fjarlægð.
Snúðu bakhlið tækisins að þér og ýttu á og renndu bakhliðinni í þá átt sem örin bendir.
2. Ef rafhlaðan er í tækinu skal fjarlægja hana úr rafhlöðuhólfinu með því að lyfta henni í áttina sem örin vísar
3. Opnaðu SIM-kortshölduna með því að renna henni í áttina sem örin (1) vísar og lyfta henni (2). Renndu SIM-kortinu í SIM-
kortsraufina (3). Gakktu úr skugga um að sneidda hornið á SIM-kortinu vísi upp og að snertiflötur kortsins beinist niður. Settu
SIM-kortshölduna (4) niður og renndu henni þar til hún smellur á sinn stað (5).
4. Til þess að setja rafhlöðuna í skaltu láta rafskaut hennar snerta samsvarandi nema í rafhlöðuhólfinu, í sömu átt og örin vísar,
og láta hana smella varlega í lás.
5. Stingdu festingunum á bakhliðinni í samsvarandi raufar og ýttu bakhliðinni á sinn stað.
Copyright © 2006 Nokia. All Rights Reserved.
8
Í stað SIM-korts getur verið að í tækinu sé USIM-kort, en það er endurbætt útgáfa SIM-korta sem UMTS-farsímar styðja
(sérþjónusta). Hafðu samband við þjónustuveitu til að fá nánari upplýsingar og stillingar.