Virkur biðskjár
Tækið er í virkri biðstöðu þegar kveikt hefur verið á því en engir stafir eða tölur hafa verið slegnar inn. Á virka biðskjánum er
hægt að sjá þjónustuveituna og símkerfið, áminningar og aðra vísa auk forrita sem hægt er að opna með fljótlegum hætti.
Forritin sem eiga að birtast á virkum biðskjá eru valin í
Valmynd
>
Verkfæri
>
Stillingar
>
Sími
>
Biðhamur
>
Forrit á biðskjá
.
Flettu að mismunandi stillingum flýtivísa og ýttu á stýripinnann. Flettu að forritinu sem þú vilt velja og ýttu á stýripinnann.
Til að nota venjulegan biðskjá velurðu
Valmynd
>
Verkfæri
>
Stillingar
>
Sími
>
Biðhamur
>
Virkur biðskjár
>
Óvirkur
.
Á virka biðskjánum er hægt að sjá skilaboð í möppum á borð við innhólf eða pósthólf. Veldu
Valmynd
>
Verkfæri
>
Stillingar
>
Sími
>
Biðhamur
og möppurnar í
Pósthólf á virkum biðskjá
.
Ábending: Þú getur einnig séð mismunandi tilkynningar á virka biðskjánum, t.d. ósvöruð símtöl, ólesin skilaboð eða
talskilaboð. Með þessum tilkynningum geturðu séð samskiptastöðu tækisins á afar auðveldan hátt. Veldu viðbæturnar
í
Valmynd
>
Verkfæri
>
Stillingar
>
Sími
>
Biðhamur
>
Viðbætur á virkum biðskjá
. Mismunandi getur verið hvaða
viðbætur er hægt að velja.