Hjálpartextar
Hægt er að opna hjálpartexta í opnum forritum eða í
Valmynd
. Þegar forrit er opið skaltu velja
Valkostir
>
Hjálp
til að fá
leiðbeiningar um það sem er á skjánum þá stundina.
Til þess að opna hjálpina í
Valmynd
skaltu velja
Hjálp
>
Hjálp
. Í
Hjálp
er hægt að velja flokka sem skoða á leiðbeiningar fyrir.
Veldu flokk, til dæmis Skilaboð, og ýttu á stýripinnann til að sjá hvaða leiðbeiningar (hjálpartextar) eru í boði. Á meðan þú ert
að lesa hjálpartextann skaltu fletta til vinstri eða hægri til að sjá aðra hjálpartexta í þessum flokki.
Þú getur skipt á milli forritsins og hjálpartexta þess með því að halda inni valmyndartakkanum.