Tölvupóstur skoðaður án tengingar
Þegar unnið er án tengingar er tækið ekki tengt við ytra pósthólf. Með því að vinna með tölvupóstinn þinn án nettengingar
sparar þú tengikostnað, auk þess sem þú getur unnið í honum á svæðum þar sem nettenging er ekki í boði. Allar breytingar
sem þú gerir í möppum í ytra pósthólfinu á meðan nettenging er ekki til staðar eru framkvæmdar næst þegar þú tengist og
samstillir. Ef þú eyðir út tölvupósti þegar tækið er ótengt verður honum til dæmis eytt úr ytra pósthólfinu næst þegar þú tengist
við pósthólfið.
1. Veldu
Skilaboð
>
Valkostir
>
Stillingar
>
Tölvupóstur
. Veldu pósthólfið og ýttu á stýripinnann. Veldu
Móttökustillingar
>
Sótt
tölvupóstskeyti
>
Sk.boð & viðhengi
til að flytja allan póst og viðhengi hans í tækið.
2. Opnaðu pósthólfið þitt og veldu
Valkostir
>
Sækja tölvupóst
. Veldu
Nýjan
til að sækja nýjan tölvupóst sem þú hefur hvorki
lesið né sótt áður,
Valinn
til að sækja aðeins tölvupóst sem hefur verið valinn í ytra pósthólfinu og
Allan
til að sækja allan
þann tölvupóst sem hefur ekki verið sóttur áður. Tækið tengist við pósthólfið.
3. Eftir að hafa sótt tölvupóst skaltu velja
Valkostir
>
Aftengja
til að aftengjast við pósthólfið.
4. Tölvupóstskeyti eru skoðuð með því að fletta að þeim og ýta á stýripinnann.
Til að hægt sé að nota tiltekna valkosti verður tenging að vera virk við ytra pósthólfið.
Ábending: Til að gerast áskrifandi að öðrum möppum í ytra pósthólfinu skaltu velja
Stillingar tölvupósts
>
Móttökustillingar
>
Möppur í áskrift
. Tölvupóstur í öllum möppum í áskrift er uppfærður þegar tölvupóstur er sóttur
úr ytra pósthólfinu.