Nokia E60 - Myndsímtöl

background image

Myndsímtöl

Til að geta hringt myndsímtal þarftu að vera innan þjónustusvæðis UMTS-símkerfis. Símafyrirtækið þitt eða þjónustuveitan þín

gefa upplýsingar um framboð og áskrift að myndsímtölum. Þegar þú hringir myndsímtal getur þú sent kyrrmynd í samhæfan

síma viðtakandans, eða séð hreyfimynd í rauntíma á milli þín og viðtakandans, ef hann er með samhæfan farsíma með

hreyfimyndavél. Aðeins er hægt að koma á myndsímtali við einn aðila í einu.

Viðvörun: Ekki skal halda tækinu nálægt eyranu þegar hátalarinn er notaður því hljóðstyrkur getur verið mjög mikill.

Veldu kyrrmyndina sem á að senda í

Verkfæri

>

Stillingar

>

Símtalsstill.

>

Mynd í myndsímtali

.

Til að hringja myndsímtal skaltu slá inn símanúmerið eða velja viðtakanda í

Tengiliðir

og velja

Valkostir

>

Hringja

>

Myndsímtal

. Ekki er hægt að breyta myndsímtali í venjulegt raddsímtal.

Meðan á símtali stendur geturðu valið

Valkostir

og úr eftirfarandi:

Hljóð

— Tala við viðtakanda símtalsins.

Hreyfimynd

— Sjá hreyfimynd án hljóðs.

Hátalari

— Velja að heyra hljóðið í hátölurunum.

Símtól

— Slökkva á hátölurunum og nota símtólið.