Útilokun símtala
Útilokun og flutningur símtala getur ekki verið virkt samtímis.
Þegar símtöl eru útilokuð getur samt verið hægt að hringja í tiltekin opinber neyðarnúmer.
Veldu
Valmynd
>
Verkfæri
>
Stillingar
>
Útilokanir
.
Hægt er að loka fyrir að hægt sé að hringja úr tækinu eða taka á móti símtölum (sérþjónusta). Til að breyta stillingunum þarftu
lykilorð útilokanna frá þjónustuveitunni þinni. Útilokun símtala gildir um öll símtöl, þ.á m. gagnasímtöl.
Til að loka fyrir símtöl velurðu
Útilokun farsíma
og einhvern eftirfarandi valkosta:
•
Úthringingar
— Til að hindra að hægt sé að hringja úr tækinu.
•
Innhringingar
— Til að loka fyrir innhringingar.
•
Millilandahringingar
— Til að hindra að hægt sé að hringja til útlanda.
•
Innhr. þegar erlendis
— Til að loka fyrir innhringingar þegar þú ert erlendis.
•
Millil.símt. utan heimalands
— Til að hindra að hægt sé að hringja til útlanda en leyfa símtöl til heimalands þíns.
Til að athuga stöðuna á útilokun símtala skrunarðu að valkostum útilokunar og velur
Valkostir
>
Athuga stöðu
.
Til að slökkva á útilokun símtala skrunarðu að valkostum útilokunar og velur
Valkostir
>
Ógilda all. útilokanir
.