Símtöl
Þegar tækið er læst getur samt verið hægt að hringja í opinbera neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.
Í ótengdu sniði getur þurft að færa inn lykilnúmer og breyta yfir í hringisnið áður en hringt er, einnig í neyðarnúmer.
Til að hringja og taka á móti símtölum verður að vera kveikt á símanum, gilt SIM-kort í tækinu og þú verður að vera staðsett/
ur innan þjónustusvæðis farsímakerfisins. GPRS tengingin er sett í bið meðan á raddsímtali stendur, nema símkerfið styðji
tvöfaldan flutning eða þú notir USIM kort og sért innan þjónustusvæðis UMTS símkerfis.
Sláðu inn símanúmerið, ásamt svæðisnúmeri, og ýttu á hringitakkann. Ef þú slærð inn rangt númer skaltu ýta á hreinsitakkann.
Ábending: Til að hringja til útlanda skaltu ýta tvisvar á * takkann til að setja inn plúsmerkið (+) í stað alþjóðlega
svæðisnúmersins. Sláðu því næst inn landsnúmerið og svæðisnúmerið (slepptu 0 í upphafi ef með þarf) og svo
símanúmerið.
Til að ljúka símtali eða hætta við að hringja ýtirðu á hætta-takkann.
Til að hringja í tengiliði sem eru vistaðir í minninu skaltu ýta á
Tengiliðir
þegar tækið er í biðstöðu. Sláðu inn fyrstu stafina í
nafninu, flettu að nafninu og ýttu á hringitakkann.
Sjá „Tengiliðir“, bls. 26.
Ýttu á hringitakkann til að sjá síðustu númer (allt að 20 númer) sem þú hringdir í eða reyndir að hringja í. Veldu númer eða nafn
og ýttu á hringitakkann til að hringja í það
Sjá „Notk.skrá“, bls. 21.
Notaðu hljóðstyrkstakkana til að stjórna hljóðstyrknum á virka símtalinu.
Til að hringja í talhólfið þitt (sérþjónusta) þegar tækið er í biðstöðu skaltu halda inni takkanum 1 eða ýta á 1 takkann og svo á
hringitakkann.