Snið
Viðvörun: Í ótengdu sniði er ekki hægt að hringja eða svara símtölum, eða nota aðrar aðgerðir sem þurfa tengingu
við símkerfi. Áfram er hægt að hringja í það neyðarnúmer sem er forritað í tækið. Skipta verður um snið áður en hægt
er að hringja. Ef tækinu hefur verið læst skal færa inn lykilnúmerið.
Veldu
Valmynd
>
Verkfæri
>
Snið
.
Þú getur stillt og sérsniðið hringitóna, viðvörunartóna og aðra tóna tækisins fyrir mismunandi viðburði, umhverfi og
viðmælendahópa.
Til að sérsníða snið skaltu fletta að sniðinu sem þú vilt nota í listanum og velja
Valkostir
>
Sérsníða
.
Færðu inn eftirfarandi stillingar:
•
Hringitónn
— Veldu hringitón af listanum eða veldu
Hl. niður tónum
til að opna bókamerkjamöppu með lista yfir bókamerki
til að hlaða niður hringitóna í vafranum. Til að hlusta á valinn tón skaltu velja
Spila
. Ef þú ert með tvær símalínur getur þú
haft sér hringitón fyrir hvora línu.
•
Hringitónn myndsímt.
— Veldu hringitón fyrir myndsímtöl.
•
Segja nafn hringj.
— Gerðu texta-í-tal hringitóninn virkan. Þegar einhver á tengiliðalistanum hringir í þig heyrist hringitónn
í símanum sem er sambland af nafni tengiliðarins og hringitóninum sem þú valdir.
•
Gerð hringingar
— Veldu hvernig hringitónninn á að heyrast.
•
Hljóðst. hringingar
— Stilltu hljóðstyrk hringitónsins.
•
Viðv.tónn skilaboða
— Veldu tón fyrir móttekin textaskilaboð.
•
Viðv.tónn tölvupósts
— Veldu tón fyrir móttekin tölvupóstskeyti.
•
Viðv.tónn spjalls
— Veldu tón fyrir móttekin spjallboð.
•
Varar við með titringi
— Veldu hvort tækið á að titra þegar hringt er í þig.
•
Takkatónar
— Stilltu hljóðstyrk takkatóna tækisins.
•
Aðvörunartónar
— Kveiktu eða slökktu á viðvörunartónum.
•
Gera viðvart um
— Þú getur stillt tækið þannig að það hringi aðeins þegar um er að ræða símanúmer í ákveðnum
viðmælendahópi. Enginn hringitónn heyrist ef fólk utan þess hóps hringir.
•
Nafn sniðs
— Þú getur nefnt nýtt snið eða endurnefnt snið sem þegar er til. Sniðin
Almennt
og
Ótengdur
er ekki hægt að
endurnefna.
Ótengdur
sniðið hindrar þig í að kveikja óvart á tækinu eða senda eða taka á móti skilaboðum. Það lokar einnig öllum þeim
internettengingum sem eru virkar þegar sniðið er valið.
Ótengdur
sniðið kemur ekki í veg fyrir að þráðlausum
staðarnetstengingum sé komið á eða Bluetooth notað seinna. Fylgdu því viðeigandi öryggisráðstöfunum þegar þú kemur á
og notar þráðlausar staðarnetstengingar eða Bluetooth.
Til að velja nýtt snið skaltu fletta að sniðinu sem þú vilt nota í listanum og velja
Valkostir
>
Gera virkt
. Ef þú velur
Ótengdur
sniðið
getur þú hvorki sent né tekið við skilaboðum. Hins vegar getur þú komið á þráðlausri staðarnetstengingu til að lesa tölvupóst
eða notað Bluetooth síðar. Fylgdu því viðeigandi öryggisráðstöfunum þegar þú kemur á og notar þráðlausar
staðarnetstengingar eða Bluetooth.
Til að búa til nýtt snið skaltu velja
Valkostir
>
Búa til nýtt
og tilgreina stillingarnar.