Nokia E60 - Unnið með reiti

background image

Unnið með reiti

Til að breyta reit, skaltu velja reitinn og

Valkostir

>

Sýna dálkreit

>

Breyta dálkreit

. Textareitur opnast að ofanverðu. Færðu inn

upplýsingarnar og veldu

Lokið

til að ljúka breytingunum.

Til að bæta við reitum skaltu velja svæðið þar sem nýir reitir eiga að koma og velja

Valkostir

>

Reitir

>

Setja inn

. Þú getur sett

inn reiti fyrir ofan (

Færa reiti niður

) eða vinstra megin (

Færa reiti til hægri

) við tilteknu mörkin. Ef þú velur einungis einn reit er

einungis einum nýjum reit bætt við. Ef þú velur fleiri en einn reit er samsvarandi fjölda auðra reita bætt við. Einnig er hægt að

bæta inn nýrri röð eða dálki.
Til að eyða innihaldi eða sniði reita skaltu velja reiti og síðan

Valkostir

>

Reitir

>

Hreinsa

. Ef þú velur

Snið

eyðirðu sniði valinna

reita, án þess þó að breyta innihaldinu. Sjálfvalið snið er notað. Ef þú velur

Innihald

eyðirðu innihaldi valinna reita, án þess þó

að breyta sniðinu. Þú getur einnig eytt bæði sniði og innihaldi völdu reitanna.
Til að eyða reitum, röðum eða dálkum skaltu velja þá hluti sem þú vilt eyða og síðan

Valkostir

>

Reitir

>

Eyða

. Hægt er að eyða

heilli röð eða dálki. Ef þú velur

Færa reiti til vinstri

er völdum reitum eytt og reitirnir sem eru hægra megin við færast til vinstri.

Ef þú velur

Færa reiti upp

færast reitirnir upp sem eru fyrir neðan þá reiti sem er eytt.

Ábending: Þegar þú eyðir upplýsingum sem tafla er byggð á, eru upplýsingarnar einnig fjarlægðar úr töflunni.